Brjóstmæling
Notaðu mjúkt málband, þræddu það undir handakrikana og utan um bakið og yfir brjóstið þar sem það er þykkast. Hafðu málbandið þannig að það sé sæmilega þétt, olnbogar vísa niður. Þegar þú ert búin/nn að koma málbandinu fyrir, dragðu andan inn og andaðu frá þér svo að málbandið sé þá komið í þægilegustu stöðu og ekki of þétt. Ef þú endar á hálfum cm rúnaðu þá frekar upp á við.
Mittismæling
Notaðu mjúkt málband, þræddu það kringum þig á grennsta hluta mittisins. Hafðu málbandið alveg samsíða gólfinu. Settu einn fingur á milli málbandsins og líkamans til að sjá hvað myndi vera þægilegt snið fyrir þig.
Mjaðmir
Notaðu mjúkt málband, þræddu það kringum þig á breiðasta hluta mjaðmanna. Um það bil 8-10 cm fyrir ofan klof. Hafðu málbandið alveg samsíða gólfinu.
Innanmál / Inseam
Leggðu uppáhaldsbuxurnar þínar á flatt borð. Mældu frá miðju innanverðu klofi niður að faldi neðst á buxunum. Mæling á líkama er frá nára niður að öklabeini
Ertu að leita að virkilega þægilegum æfingabuxum?
Auður leggings eru hannaðar fyrir hlaup og fyrir þig til að vera í öllum stundum, hvort sem það er bara við léttar æfingar, skokk eða bara þegar þú vilt vera í frábærum buxum sem láta þér líða vel í góðra vina hópi.
Frábærar æfingabuxur úr mjög mjúku og fínu efni. Efnið í þeim er létt og mjúkt þannig þetta er tilvalin kostur alla daga.
KOSTIR
Tegund: Leggings
Efni: 77% Polyester / 23% Elastane
Má þvo i þvottavél 30°C
Ekki strauja á merkingar og ekki setja í þurrkara
Þær afhendingarleiðir sem við bjóðum upp á: