Notaðu mjúkt málband, þræddu það undir handakrikana og utan um bakið og yfir brjóstið þar sem það er þykkast. Hafðu málbandið þannig að það sé sæmilega þétt, olnbogar vísa niður. Þegar þú ert búin/nn að koma málbandinu fyrir, dragðu andan inn og andaðu frá þér svo að málbandið sé þá komið í þægilegustu stöðu og ekki of þétt. Ef þú endar á hálfum cm rúnaðu þá frekar upp á við.
Mittismæling
Notaðu mjúkt málband, þræddu það kringum þig á grennsta hluta mittisins. Hafðu málbandið alveg samsíða gólfinu. Settu einn fingur á milli málbandsins og líkamans til að sjá hvað myndi vera þægilegt snið fyrir þig.
Mjaðamamæling
Notaðu mjúkt málband, þræddu það kringum þig á breiðasta hluta mjaðma. Um það bil 8-10 cm fyrir ofan klof. Hafðu málbandið alveg samsíða gólfinu.
Innanmál / Inseam
Leggðu uppáhaldsbuxurnar þínar á flatt borð. Mældu frá miðju innanverðu klofi niður að faldi neðst á buxunum. Mæling á líkama er frá nára niður að öklabeini
8.400 kr
Sérstaklega hannaðar íþróttabuxur fyrir mikla hreyfingu, hlaup jafnt sem jóga eða aðra skemmtilega hreyfingu. Æfingabuxurnar anda vel og eru mjög þægilegar úr mjúku efni sem auðvelt er að hreyfa sig í.