Brjóstmæling
Notaðu mjúkt málband, þræddu það undir handakrikana og utan um bakið og yfir brjóstið þar sem það er þykkast. Hafðu málbandið þannig að það sé sæmilega þétt, olnbogar vísa niður. Þegar þú ert búin/nn að koma málbandinu fyrir, dragðu andan inn og andaðu frá þér svo að málbandið sé þá komið í þægilegustu stöðu og ekki of þétt. Ef þú endar á hálfum cm rúnaðu þá frekar upp á við.
Mittismæling
Notaðu mjúkt málband, þræddu það kringum þig á grennsta hluta mittisins. Hafðu málbandið alveg samsíða gólfinu. Settu einn fingur á milli málbandsins og líkamans til að sjá hvað myndi vera þægilegt snið fyrir þig.
Mjaðmir
Notaðu mjúkt málband, þræddu það kringum þig á breiðasta hluta mjaðmanna. Um það bil 8-10 cm fyrir ofan klof. Hafðu málbandið alveg samsíða gólfinu.
Innanmál / Inseam
Leggðu uppáhaldsbuxurnar þínar á flatt borð. Mældu frá miðju innanverðu klofi niður að faldi neðst á buxunum. Mæling á líkama er frá nára niður að öklabeini
Hefurðu prufað þessar einstaklega þægilegu og öflugu æfingabuxur?
Íþróttabuxurnar Eir eru sérstaklega hannaðar fyrir mikla hreyfingu, efnið andar vel og heldur vel að líkamanum. Góðar í jóga, hlaup og aðra skemmtilega hreyfingu sem krefst góðs stuðnings. Einnig hönnuðum við vasa á hliðum fyrir símann þinn eða greiðslukortið :)
Þær henta einstaklega vel í hlaup, jóga, pilates og að sjálfsögðu í lyftingarsalinn. þetta er fjárfesting í betri líðan, áhyggjulausari æfingum og bættum árangri.
KOSTIRTegund: Leggings
Efni:
Þær afhendingarleiðir sem við bjóðum upp á: